Mamadou Sakho, varnarmaður Liverpool, segist hafa verið eins og ljón í búri þegar hann fékk ekki að spila í byrjun tímabils.
Sakho var ekki í liði Liverpool í fyrstu fimm leikjum tímabilsins en hann hefur spilað síðustu leiki eftir að hafa staðið sig vel þegar hann fékk loksins tækifæri í leik gegn Bordeaux í Evrópudeildinni í síðasta mánuði.

„Á þessum tíma stutta tíma sem ég var ekki að spila þá var ég eins og ljóni í búri sem hafði ekki fengð að borða í talsverðan tíma," sagði Sakho.
„Þegar dyrar opnast þá ræðstu til atlögu," bætti Sakho við en þetta er athyglisverð samlíking hjá honum.
Athugasemdir