Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. október 2015 13:10
Magnús Már Einarsson
Reiknar með að Neymar spili út ferilinn með Barcelona
Mynd: Getty Images
Neymar mun leika með Barcelona út ferilinn en þetta segir Roberto Fernandez tæknilegur ráðgjafi félagsins.

Hinn 23 ára gamli Neymar er samningsbundinn til ársins 2018 en félagið er í viðræðum við hann um nýjan samning.

Sá samningur mun gera Neymar að næstlaunahæsta leikmanni Barcelona á eftir Messi.

„Við erum að vinna í framlengingu á samningi Neymar og ég held að það verði ekki vandamál," sagði Fernandez.

„Ég er ekki í vafa um að Neymar muni vera út lífið hjá Barcelona."
Athugasemdir
banner
banner
banner