Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 06. október 2015 15:18
Magnús Már Einarsson
Ungur Þórsari á reynslu hjá Heerenveen
Mynd: Heimasíða Þórs
Hinn 15 ára gamli Birkir Heimisson þáði boð Hollenska liðsins SC Heerenveen og er þessa vikuna á reynslu í Hollandi þar sem hann mun æfa og leika með yngri liðum félagsins.

Birkir er í 3. flokki Þórs en greint er frá ferð hans til Hollands á heimasíðu félagsins.

Birkir spilaði með U-17 ára liði Íslands í undankeppni Evrópu mótsins sem fram fór hér á landi í síðastliðnum mánuði þar sem hann kom við sögu í öllum leikjum Íslands.

Þá varð Birkir bikarmeistari með þriðja flokki Þórs í sumar eftir sigur gegn KA.
Athugasemdir
banner
banner