Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. desember 2017 19:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danmörk: Hallgrímur og félagar úr leik eftir framlengingu
Mynd: Getty Images
Silkeborg 3 - 1 Lyngby
1-0 Davit Skhirtladze ('58)
1-1 Martin Ørnskov ('88)
2-1 Tobias Sahlquist ('92)
3-1 Stephan Petersen ('103)

Hallgrímur Jónasson og félagar í Lyngby eru úr leik í dönsku bikarkeppninni eftir tap í kvöld.

Lyngby heimsótti Silkeborg og lenti 1-0 undir eftir tæpan stundarfjórðung í seinni hálfleiknum. Hallgrími og félögum tókst þó að knýja fram framlengingu með marki á 88. mínútu.

Í framlengingunni reyndist Silkeborg sterkari og lokatölur urðu 3-1. Tobias Sahlquist, fyrrum leikmaður Fjölnis, var á skotskónum fyrir Silkeborg, en hann skoraði annað mark þeirra.

Hallgrímur spilaði í dag, en hann er að snúa aftur úr meiðslum.

Þessi leikur var í 16-liða úrslitum bikarsins.




Athugasemdir
banner
banner
banner