Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 07:30
Magnús Már Einarsson
Del Piero: Can væri fullkominn fyrir Juventus
Can verður samningslaus næsta sumar.
Can verður samningslaus næsta sumar.
Mynd: Getty Images
Juventus goðsögnin Alessandro Del Piero vonast til að Emre Can komi til félagsins frá Liverpool á næsta ári.

Can verður samningslaus næsta sumar og Juventus hefur mikinn áhuga á að fá hann í sínar raðir. Juventus gæti reynt að kaupa Can í janúar eða fengið hann frítt næsta sumar.

„Liðið hans Allegri þarf annan miðjumann því (Sami) Khedira meiðist af og til lítillega. (Claudio) Marchisio er að koma til baka eftir meiðsli en hann er ekki ennþá upp á sitt besta auk þess sem (Miralem) Pjanic er ekki líkamlega sterkur," sagði Del Piero.

„Emre Can hjá Liverpool væri fullkominn og hann er ekki einu sinni dýr. Hann gæti verið stóra nafnið hjá Juve í janúar. Þeir þurfa einhvern eins og hann."

„Hann er líkamlega öflugur og leikmaður eins og Emre Can myndi henta vel með Pjanic og Khedira."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner