mið 06. desember 2017 22:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Við komum hingað til að vinna
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola var svekktur eftir 2-1 tap Manchester City gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni í kvöld.

City var með fullt hús stiga fyrir leikinn og var búið að vinna riðil sinn, en þrátt fyrir það var Guardiola svekktur.

„Ég vil óska Shakhtar til hamingju, þetta var góður leikur," sagði Guardiola eftir leik. „Fyrsta mark þeirra var stórkostlegt, í öðru markinu var varnarleikur okkar ekki góður."

Guardiola hvíldi nokkra lykilmenn og gaf ungum strákum eins og Tosin Adarabioyo og Phil Foden tækifæri.

„Ég er gríðarlega ánægður fyrir hönd Tosin (Adarabioyo), Phil (Foden) og Brahim Diaz, þeir spiluð vel. Við komum hingað til að vinna, en gátum það ekki," sagði Guardiola.

„Núna munum við hvíla okkur, fara heim á morgun og undirbúa leikinn gegn Manchester United."
Athugasemdir
banner
banner