Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 06. desember 2017 17:09
Elvar Geir Magnússon
Indónesar spenntir fyrir heimsókn Íslands
Icelandair
Frá fréttamannafundinum í Indónesíu í dag.
Frá fréttamannafundinum í Indónesíu í dag.
Mynd: Knattspyrnusamband Indónesíu
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var haldinn fréttamannafundur í Indónesíu vegna heimsóknar íslenska landsliðsins í janúar.

Ísland leikur tvo leiki gegn Indónesíu og fara þeir fram 11. og 14. janúar. Leikirnir verða leiknir utan alþjóðlegra leikdaga FIFA.

Á fréttamannafundinum var sagt að það væri mikill heiður að fá íslenska landsliðið í heimsókn þegar það býr sig undir þátttöku á HM í Rússlandi.

Þetta verður í fyrsta sinn sem liðin tvö mætast en Indónesía er ekki hátt skrifað í alþjóðlegum fótbolta og situr í 154. sæti FIFA-listans. Liðið hefur þó verið að klífa upp listann síðustu tvö ár.

Formaður knattspyrnusambands Indónesíu segir að það sé mikið hægt að læra af íslenskum fótbolta og að sambandið vonast til að læra ýmislegt í heimsókn íslenska hópsins.

Engir alþjóðlegir leikdagar eru í janúar og því er ljóst að margir fastamenn verða fjarverandi í íslenska liðinu. Leikmenn sem hafa lítið verið í hópnum fá tækifæri líkt og á æfingamóti í Kína í janúar á þessu ári.

„Menn spyrja sig af hverju við erum að fara svona langt í burtu. Það er eftirsóknarvert að spila við Ísland og þetta er boðsferð svo allt er frítt; Flug, gisting, matur og æfingaaðstaða. Við þiggjum það með þökkum," segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í viðtali við Fótbolta.net.

„Þetta er hlýtt land og það er fínt að vera með óreyndari hóp á svona stað þar sem við getum eytt góðum tíma í æfingar, spjall og kannski á aðeins rólegra tempói. Á margan hátt er þetta frábær ferð þó ferðalagið sé langt."

Hvað vill Heimir fá út úr verkefni sem þessu?

„Svipað og gerðist þegar við fórum fyrir EM. Þarna eru strákar sem við vitum að geta komist í landsliðshópinn. Þetta eru yfirleitt yngri leikmenn og leikmenn sem hafa fengið minni spiltíma. Við viljum að leikmenn sem töldu að þeir ættu ekki möguleika á að fara til Rússlands sjái að það er möguleiki. Það er hálft ár þar til valið verður í lokakeppnina og það getur margt gerst á þeim tíma, sérstaklega hjá yngri leikmönnum. Menn geta farið á flug á styttri tíma en það," segir Heimir.

„Við viljum fá að kynnast mönnum inni í umhverfinu okkar, hvernig þeir finni sig í liðsheildinni og hversu góðir karakterar þeir eru. Svo er það þeirra að svara því hvað þeir gera á þessum tíma eftir þetta verkefni. Hálft ár er langur tími."

Indónesía er að undirbúa U23 lið sitt fyrr Asíuleikana næsta sumar. Liðið sem leikur gegn Íslandi verður því að mestu eða öllu leyti skipað leikmönnum 23 ára og yngri.
Athugasemdir
banner
banner