Jese Rodriguez, leikmaður Stoke, brjálaðist þegar hann kom ekki inn á í 2-1 sigrinum á Swansea um helgina.
Þegar Mark Hughes, stjóri Stoke, hafði notað allar skiptingar sínar þá rauk Jese inn í klefa áður en leikurinn kláraðist. Jese var síðan fljótur að bruna heim til sín.
Jese er í láni hjá Stoke frá PSG en undanfarnar vikur hafa verið erfiðar fyrir hann.
Spánverjinn hefur ekki byrjað leik í ensku úrvalsdeildinni síðan 21. október en Hughes sagði á dögunum að Jese muni fá sitt tækifæri í liðinu þegar leikjaálagið verður mikið í kringum jólin.
Utan vallar hefur Jese verið mikið á ferðalagi milli Englands og Spánar en í heimalandinu hefur kornungur sonur hans Nyan dvalið á spítala eftir að hann fæddist fjórum mánuðum fyrir tímann.

Sjá einnig:
Jese birtir mynd af kornungum syni sem berst fyrir lífi sínu
Athugasemdir