Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 22:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Auðvitað var Danny Rose pirraður
Mynd: Getty Images
„Að enda á góðum nótum var frábært fyrir okkur," sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, eftir 3-0 sigur á APOEL í Meistaradeildinni á þessu miðvikudagskvöldi.

Lærisveinar Pochettino kláruðu riðlakeppnina með stæl þrátt fyrir að vera búnir að vinna riðil sinn.

„Leikmenn sem ekki hafa spilað í hverri viku fengu að spila í kvöld og ég er ánægðu með þeirra frammistöðu."

„Að enda með 16 stig í erfiðum riðli er stórkostlegt afrek."

Danny Rose fékk skurð nálægt öðru auga sínu og var tekinn af velli. Það var hann ekki par sáttur með.

„Leikmenn eru aldrei sáttir þegar þeir eru teknir út af. Hann fékk stóran skurð og læknarnir þurftu að sauma hann. Auðvitað er leikmaðurinn pirraður, þetta er Meistaradeildin!"
Athugasemdir
banner
banner
banner