Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 06. desember 2017 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger hefði viljað sjá Wilshere sleppa skautaferðinni
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er ekki sérlega sáttur með þá ákvörðun Jack Wilshere að fara á skauta.

Wilshere, sem er mikill meiðslapési, birti mynd af sér og fjölskyldu sinni á Twitter er þau skelltu sér á skauta.

Við myndina skrifaði Wilshere: „Jákvæð vika, tókst að komast í gegnum 20 mínútur á skautum án þess að meiðast."

Wenger var spurður út í málið á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Bate Borisov í Evrópudeildinni á morgun.

„Þetta er ekki tilvalið. Þetta er ekki frábært fyrir knattspyrnumann að gera, en það fer líka eftir því hvernig þú skautar," sagði Wenger er blaðamenn spurðu hann.

„Þú getur skautað og passað að ekkert gerist. Ég efast um að hann hafi verið að skauta glannalega."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner