Jack Wilshere er mikill meiðslapési og hann viðurkennir það sjálfur.
Í gær birti hann mynd af sér og fjölskyldu sinni á Twitter. Hann ákvað að skella sér á ísinn og leika sér á skautum.
Við myndina á Twitter skrifar hann: „Jákvæð vika, tókst að komast í gegnum 20 mínútur á skautum án þess að meiðast."

Wilshere hefur verið mikið meiddur í gegnum tíðina en hann hefur lítið verið meiddur á þessu tímabili. Hann hefur þrátt fyrir það ekki mikið verið að spila og aðeins komið við sögu í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni, í öllum þeim sem varamaður.
Wilshere verður samningslaus eftir tímabilið og gæti ákveðið að prófa eitthvað annað ef hlutirnir breytast ekki.
Positive week, managed to get through 20 minutes of ice skating without getting injured 😁💪😂 pic.twitter.com/FjCvOmLQif
— Jack Wilshere (@JackWilshere) December 5, 2017
Athugasemdir