Ashley Cole, fyrrum leikmaður Chelsea og Roma, segist ekki vera kominn til Los Angeles Galaxy til þess að slaka á.
Cole gekk til liðs við LA Galaxy í síðustu viku, en árið 2014 hafnaði hann tilboðum frá Bandaríkjunum og fór til Roma.
Cole gekk til liðs við LA Galaxy í síðustu viku, en árið 2014 hafnaði hann tilboðum frá Bandaríkjunum og fór til Roma.
Hann sagði við félagsskipti sín til Roma að hann hefði hafnað tilboðunum frá Bandaríkjunum vegna þess að hann væri ekki tilbúinn að slaka á við ströndina strax, en hvað hefur breyst núna?
"Ég sagði þessi orð, en þau voru tekin úr samhengi," sagði Cole.
" Ég verð að takast á við þetta og vona að ég geti breytt skoðunum mínum við koma hingað"
"Síðustu tvö ár voru erfið hjá mér, en nú er ég kominn hingað og ég ætla mér að vinna titla hér."
Athugasemdir