Arsenal heimsækir nýliða Bournemouth á Vitality leikvanginn í fyrri leik dagsins í enska boltanum.
Liðin áttust við á Emirates leikvangnum milli jóla og nýárs þar sem Arsenal vann 2-0 sigur með mörkum frá Gabriel og Mesut Özil.
Þeir eru báðir í byrjunarliði Arsenal í dag.
Bournemouth voru virkir á leikmannamarkaðnum í janúar og þeir stilla Benik Afobe upp í fremstu víglínu í dag en þessi 22 ára framherji hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum. Hann ólst upp hjá Arsenal.
Byrjunarlið Bournemouth:Boruc, Smith, Francis, Cook, Daniels, Surman, Gosling, Arter, Ritchie, Pugh, Afobe.
Byrjunarlið Arsenal:Cech, Bellerin, Koscielny, Gabriel, Monreal, Flamini, Ramsey, Oxlade-Chamberlain, Özil, Sanchez, Giroud.
Athugasemdir