Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2016 16:07
Arnar Geir Halldórsson
Flamini: Verðum að vinna Leicester
Ánægður með dagsverkið
Ánægður með dagsverkið
Mynd: Getty Images
Mathieu Flamini lék allan leikinn á miðju Arsenal þegar liðið vann góðan 2-0 sigur á Bournemouth í fyrri leik dagsins í enska boltanum.

Franski vinnuþjarkurinn var ánægður með liðsfélaga sína og hrósaði þeim sérstaklega fyrir dugnað eftir leikinn.

„Þetta var góður sigur og þetta var sigur liðsheildarinnar. Ég er ánægður með vinnuframlag liðsins í dag."

Arsenal menn eru strax komnir með hugann við næsta verkefni enda er það ærið. Um næstu helgi fær liðið heimsókn frá toppliði deildarinnar, Leicester og Flamini gerir sér grein fyrir mikilvægi leiksins.

„Við eigum erfiðan leik fyrir höndum um næstu helgi á móti Leicester. Þann leik verðum við að vinna," sagði Flamini.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner