Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2016 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hazard: Myndi vilja vinna með Zidane
Hazard vill vinna með Zidane
Hazard vill vinna með Zidane
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, leikmaður Chelsea, segist vilja vinna með Zinedine Zidane, stjóra Real Madrid, á ferlinum.

Zidane hefur talað vel um Hazard, en Hazard hefur lengi verið orðaður við brottför til Real Madrid.

"Já, auðvitað væri ég til í að vinna með Zidane," sagði Hazard þegar hann var spurður út í málið.

"Þegar ég var lítill þá horfði ég á hann í sjónvarpinu og á netinu í marga klukkutíma. Allt snerist um Zidane."

"Það er alltaf gaman að heyra að leikmaður sem ég leit mikið upp til sem krakki sé að tala um mig."

"Ég hef alltaf dáðst að Zidane, en ég er samningsbundinn Chelsea og mér líður mjög vel hér," sagði Hazard að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner