Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2016 19:47
Alexander Freyr Tamimi
Ítalía: Hörður lék allan leikinn í markalausu jafntefli
Hörður Björgvin spilaði allan leikinn fyrir Cesena.
Hörður Björgvin spilaði allan leikinn fyrir Cesena.
Mynd: Getty Images
Modena 0 - 0 Cesena

Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn þegar Cesena gerði markalaust jafntefli við erkifjendur sína í Modena í ítölsku Seríu B.

Íslenski landsliðsmaðurinn var sterklega orðaður við brottför frá Cesena í janúarglugganum síðastliðnum og voru mörg félög í Seríu A nefnd til sögunnar. Á endanum varð hann þó um kyrrt hjá Cesena, en hann er í láni hja félaginu frá Juventus.

Hörður Björgvin hefur eftir því sem liðið hefur á tímabilið náð að festa sig í sessi í liði Cesena, en hann berst nú fyrir sæti í landsliðshópi Íslands á EM 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner