Jesse Lingard var hársbreidd frá því að tryggja Manchester United sigur gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Diego Costa jafnaði hins vegar metin í uppbótartíma og lokatölur 1-1.
Lingard viðurkennir að jafnteflið hafi verið eins og tap fyrir leikmenn United úr því sem komið var.
Lingard viðurkennir að jafnteflið hafi verið eins og tap fyrir leikmenn United úr því sem komið var.
„Við spiluðum meiri hluta leiksins vel en að fá á sig mark svona seint er eins og að tapa," sagði Lingard við Sky Sports, en hann kom United í 1-0 með laglegu marki eftir rúman klukkustundar leik.
„Það var bara eðlisávísun að snúa og sparka í markið, en við vildum stigin þrjú. Mér finnst við samt vera að spila miklu betur núna."
Athugasemdir