Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. febrúar 2016 23:13
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Ryðgaður Valdes fékk á sig skrautlegt mark
Valdes err ryðgaður eftir martraðardvöl á Old Trafford.
Valdes err ryðgaður eftir martraðardvöl á Old Trafford.
Mynd: Getty Images
Eftir misheppnaða dvöl hjá Manchester United virðist markvörðurinn Victor Valdes vera orðinn eilítið ryðgaður.

Þessi fyrrum markvörður Barcelona, sem hefur unnið ótal titla, var lánaður til Standard Liege í Belgíu á dögunum og var fljótur að komast í byrjunarliðið þar.

Valdes gerði dýr mistök gegn Truidense eftir hornspyrnu í dag. Hann brást fáránlega við bolta sem kom inn í teiginn, fleytti honum á leikmann andstæðinganna og boltinn endaði í netinu.

Markið var að vísu hið spaugilegsta en boltanum var dúndrað í höfuðið á Nick Proschwitz af varnarmanni og endaði síðan í netinu.

Hér að neðan má sjá mistök Valdes og markið.


Athugasemdir
banner
banner