Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. febrúar 2016 10:35
Arnar Geir Halldórsson
Pep vill fá Suarez til Man City - Sturridge til Newcastle
Powerade
Snýr hann aftur í enska boltann?
Snýr hann aftur í enska boltann?
Mynd: Getty Images
Framtíð Sturridge í óvissu
Framtíð Sturridge í óvissu
Mynd: Getty Images
Þó búið sé að loka félagaskiptaglugganum í Evrópu halda ensku blöðin áfram að slúðra af fullum krafti. Venju samkvæmt tók BBC saman þennan pakka.



Úrugvæska markavélin Luis Suarez er efstur á óskalista Pep Guardiola þegar hann tekur við Man City næsta sumar. (Sunday Mirror)

Fleiri leikmenn Barcelona eru á óskalista Guardiola því hann vill fá Neymar og Sergio Busquets fyrir 150 milljónir punda. (Mail)

Jose Mourinho, fyrrum stjóri Chelsea og Real Madrid er sannfærður um að hann muni hefja næstu leiktíð sem stjóri Man Utd. (Independent)

Newcastle hyggst gera tilboð í Daniel Sturridge, sóknarmann Liverpool og er talið að Jurgen Klopp sé tilbúinn að selja kappann fyrir 30 milljónir punda. (Daily Star)

Sturridge íhugar framtíð sína hjá Liverpool þessa dagana en hann vill flytja aftur til London. (Sunday People)

Inter Milan hafnaði 23 milljón punda tilboði frá Man Utd í hinn 22 ára gamla Mauro Icardi. (Sunday Express)

Ezequiel Lavezzi mun hafna tilboði frá Chelsea og ganga í raðir kínverska liðsins Shanghai Shenhua. (Sun)

Fyrrum sóknarmenn Man Utd, Robin van Persie og Radamel Falcao eru eftirsóttir af kínverskum liðum og gætu fært sig til Kína áður en félagaskiptaglugginn lokar þar 26.febrúar. (Times)

Loic Remy, 29 ára framherji Chelsea er á óskalista kínverska liðsins Hebei Fortune. (Daily Star)

Graziano Pelle, framherji Southampton, hefur fengið mörg tilboð frá Kína að undanförnu en hafnað þeim öllum. (ESPN)

Man City hefur bæst í kapphlaupið með erkifjendum sínum í Man Utd um hinn 23 ára gamla Sadio Mane. (Sun)

Bernd Leno, markvörður Bayer Leverkusen gæti haft áhuga á að spila í enska boltanum en hann hefur verið orðaður við Liverpool. (Metro)
Athugasemdir
banner
banner