Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
   sun 07. apríl 2024 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Spurs og Forest: Einungis ein breyting
Pape Matar Sarr kemur inn í lið Tottenham.
Pape Matar Sarr kemur inn í lið Tottenham.
Mynd: Getty Images
Chris Wood gert vel fyrir Forest á tímabilinu.
Chris Wood gert vel fyrir Forest á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Klukkan 17:00 hefst lokaleikur umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Tottenham Hotspur tekur á móti Nottingham Forest.

Tottenham getur með sigri komist upp í 4. sætið, upp fyrir Aston Villa á markatölu. Forest er í 17. sæti með jafnmörg stig og Luton sem er í fallsæti en með betri markatölu. Liðið getur nálgast Brentford í 16. sætinu með því að taka stig í dag.

Ange Postecoglu, stjóri Tottenham, gerir eina breytingu frá jafnteflinu gegn West Ham. Pape Sarr kemur inn fyrir Rodrigo Bentancur sem tekur sér sæti á bekknum. Dejan Kulusevski er áfram á bekknum.

Nuno Espirito Santo, stjóri Forest, gerir enga breytingu frá sigrinum gegn Fulham.

Byrjunarlið Tottenham: Vicario, Porro, Romero, Van de Ven, Udogie, Bissouma, Sarr, Johnson, Maddison, Werner, Son.
(Varamenn: Austin, Bentancur, Davies, Dragusin, Emerson, Höjbjerg, Kulusevski, Lo Celso, Scarlett.)

Byrjunarlið Nottingham Forest: Sles, Williams, Omobamidele, Murillo, Aina, Yates, Danilo, Elanga, Gibbs-White, Hudson-Odoi, Wood.
(Varamenn: Turner, Dominguez, Montiel, Niakhate, Origi, Reyna, Ribeiro, Sangare, Toffolo.)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 4 4 0 0 11 3 +8 12
2 Arsenal 4 3 1 0 6 1 +5 10
3 Newcastle 4 3 1 0 6 3 +3 10
4 Liverpool 4 3 0 1 7 1 +6 9
5 Aston Villa 4 3 0 1 7 6 +1 9
6 Brighton 4 2 2 0 6 2 +4 8
7 Nott. Forest 4 2 2 0 4 2 +2 8
8 Chelsea 4 2 1 1 8 5 +3 7
9 Brentford 4 2 0 2 6 6 0 6
10 Man Utd 4 2 0 2 5 5 0 6
11 Bournemouth 4 1 2 1 5 5 0 5
12 Fulham 4 1 2 1 4 4 0 5
13 Tottenham 4 1 1 2 6 4 +2 4
14 West Ham 4 1 1 2 5 6 -1 4
15 Leicester 4 0 2 2 5 7 -2 2
16 Crystal Palace 4 0 2 2 4 7 -3 2
17 Ipswich Town 4 0 2 2 2 7 -5 2
18 Wolves 4 0 1 3 4 11 -7 1
19 Southampton 4 0 0 4 1 8 -7 0
20 Everton 4 0 0 4 4 13 -9 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner