Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 07. maí 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: FI | FI 
Icardi bíður með að framlengja við Inter vegna áhuga Chelsea
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi er búinn að vera lykilmaður í liði Inter á tímabilinu og hefur skorað 18 mörk í 31 deildarleik.

Icardi er 22 ára gamall sóknarmaður og er í samningsviðræðum við Inter sem gengu vel þar til Chelsea sýndi honum áhuga.

Talið er að Chelsea sé að undirbúa 30 milljón evra tilboð í leikmanninn og ætlar hann ekki að skrifa undir nýjan samning strax til að halda öllum framtíðarmöguleikum opnum.

„Fólkið á San Siro elskar mig og ég virði stuðningsmennina og reyni að gleðja þá í hverjum einasta leik. Samningsviðræður eru á erfiðum stað," sagði Icardi þegar hann var spurður út í framtíðina hjá Inter.

„Ég væri til í að eiga svipaðan feril og Zanetti hjá Inter, en ég hætti samt þegar ég er búinn að skora 200 deildarmörk."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner