Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   þri 07. maí 2024 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Staðfestir að Lautaro Martínez er að skrifa undir samning
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Javier Zanetti er goðsögn eftir tíma sinn sem leikmaður hjá Inter, en undanfarin ár hefur hann starfað sem varaforseti félagsins og staðið sig með prýði.

Samlandi hans Lautaro Martínez er besti og verðmætasti leikmaður Inter og hefur verið eftirsóttur af helstu stórliðum Evrópu, en vill ekki flytja burt frá Mílanó.

Zanetti var spurður út í framtíð Lautaro og skilaði jákvæðum fréttum.

„Hann verður fyrirliðinn okkar á næstu leiktíð, það leikur enginn vafi á því. Hann er að framlengja samninginn sinn, hann verður áfram hjá félaginu," staðfesti Zanetti

Lautaro er 26 ára gamall framherji sem á aðeins tvö ár eftir af samningi sínum við Inter.

Hann hefur komið að 170 mörkum í 280 leikjum með Inter, en á yfirstandandi leiktíð er hann með 26 mörk og 6 stoðsendingar í 42 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner