Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   þri 07. maí 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staðfestir að Man Utd ætli sér að selja Greenwood
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Angel Torres, forseti Getafe, segir að Manchester United sé búið að taka ákvörðun með Mason Greenwood.

Greenwood, sem er 22 ára gamall, kom til Getafe á láni fyrir síðasta tímabil. Hann hefur komið að sextán mörkum fyrir spænska félagið á þessari leiktíð og var á dögunum tilnefndur í lið ársins í La Liga.

Englendingurinn var handtekinn í ársbyrjun 2022 eftir að kærasta hans, Harriet Robson, deildi myndum og myndböndum af áverkum sínum, sem hún sagði vera af hendi Greenwood. Þá birti hún einnig hljóðupptöku, þar sem Greenwood virðist þvinga hana til samræðis.

Málið gegn Greenwood var fellt niður á síðasta ári, en hann hefur samt sem áður ekki spilað fyrir Man Utd eftir að það kom upp.

„Hugmynd Manchester United er að selja hann ef það kemur gott tilboð. Við verðum að bíða og sjá hvað gerist. Ég held að hann verði áfram hérna," segir Torres en Getafe vill auðvitað halda honum.

Greenwood verður líklega með nokkur tilboð í höndunum í sumar. Atlético Madríd, Barcelona og Juventus eru öll sögð áhugasöm.

„Joan Laporta (forseti Barcelona) og Deco (yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona) hafa spurt mig út í Greenwood en aðrir hafa ekki gert það," segir Torres en það verður fróðlegt að sjá hvað verður um Greenwood í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner