Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. júlí 2015 14:30
Magnús Már Einarsson
Alderweireld á leið til Tottenham
Mynd: Getty Images
Tottenham er að ganga frá samningi við Toby Alderweireld varnarmann Atletico Madrid.

Hinn 26 ára gamli Alderweireld er búinn í læknisskoðun hjá Tottenham og það styttist í að hann verði kynntur sem nýr leikmaður félagsins.

Á síðasta tímabili var Alderweireld á láni hjá Southampton.

Southampton vildi líka kaupa Alderweireld en félagið er að íhuga að lögsækja Atletico Madrid fyrir að selja leikmanninn í annað félag þrátt fyrir samning um annað.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner