„Mér finnst skrýtið að Afturelding sé ekki með fleiri stig miðað við spilamennsku þeirra í dag. Mér fannst þær gefa okkur hörkuleik," sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar eftir 3-1 sigur á Aftureldingu í kvöld.
Stjarnan er núna stigi á eftir toppliði Breiðabliks sem á leik inni gegn ÍBV á morgun.
„Við nörtum í hælana á okkur og það er ágætt. Auðvitað vonar maður að þær tapi stigum."
Stjarnan er núna stigi á eftir toppliði Breiðabliks sem á leik inni gegn ÍBV á morgun.
„Við nörtum í hælana á okkur og það er ágætt. Auðvitað vonar maður að þær tapi stigum."
Ásgerður og liðsfélagar hennar hafa verið með Snapchat Fótbolta.net í dag.
„Það er búið að vera mjög gaman. Það er ótrúleg lífsreynsla að fá að vera með þetta Snapchat," sagði Ásgerður.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir