Miðjumaðurinn Nabil Bentaleb hefur skrifað undir nýjan samning hjá Tottenham og er hann núna samningsbundinn félaginu til ársins 2020.
Bentaleb festi sæti sitt í byrjunarliði Tottenham í vetur, en þessi 20 ára gamli landsliðsmaður Alsír kom til félagsins fyrir þremur árum frá Dunkerque í Frakklandi.
Alls spilaði Bentaleb 26 leiki í ensku úrvalsdeildinni og í heildina skoraði hann eitt mark í 35 leikjum í öllum keppnum.
Ljóst er að Bentaleb er í miklum metum á White Hart Lane og er honum greinilega ætlað stórt hlutverk á næstu árum þar sem félagið hefur þegar losað sig við Etienne Capoue.
Athugasemdir