Gonzalo Balbi og Skúli Jón Friðgeirsson voru ekki með KR í bikarsigrinum gegn FH í vikunni vegna meiðsla sem þeir hlutu í fyrri leiknum gegn Cork frá Írlandi. Seinni leikurinn gegn Cork verður á KR-vellinum á fimmtudagskvöld.
Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, segir að Balbi geti ekki tekið þátt i leiknum á fimmtudag.
„Balbi getur ekki tekið þátt en Skúli verður í lagi. Það er erfitt að segja hversu lengi Balbi verður frá, þetta kemur úr bakinu á honum. Hann er farinn að hlaupa aftur og það er stutt í hann. Vonandi getur hann komið inn í hópinn fyrir sunnudagsleikinn," segir Bjarni en KR mætir Víkingi í deildinni næsta sunnudag.
Fyrri leikur KR við Cork endaði 1-1 en seinni leikurinn verður klukkan 19:15 á fimmtudagskvöld á KR-vellinum. Nánara viðtal við Bjarna verður birt hér á Fótbolta.net á morgun.
Athugasemdir