Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. júlí 2015 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lampard: Villa og Pirlo eru meðal þeirra allra bestu
Mynd: Getty Images
Frank Lampard er genginn til liðs við David Villa og Andrea Pirlo í New York Red Bulls í bandarísku MLS deildinni.

Lampard og Pirlo munu því vera partur af gífurlega reyndri miðju en báðir leikmenn eiga yfir 100 landsleiki og 400 deildarleiki á hæsta stigi að baki.

„David og Andrea eru meðal þeirra allra bestu, ég er heppinn að vera í sama liði og þeir," sagði Lampard um nýju samherja sína.

„Ég er búinn að vera að horfa á alla leiki liðsins. Ég þekki hvernig hver einasti leikmaður spilar og það verður ánægjulegt að spila með hópnum á hverjum degi.

„Ég tel Pirlo vera meðal allra bestu aukaspyrnusérfræðinga heims. Hann má taka fyrstu aukaspyrnuna!"

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner