Manchester United er að kaupa bakvörðinn Matteo Darmian frá Torino samkvæmt fréttum frá Ítalíu.
Kaupverðið er sagt vera í kringum 14 milljónir punda.
Darmian spilaði sinn fyrsta leik í Serie A með AC Milan þegar hann var 17 ára en hann hefur einnig leikið með Padova og Palermo á ferli sínum.
Kaupverðið er sagt vera í kringum 14 milljónir punda.
Darmian spilaði sinn fyrsta leik í Serie A með AC Milan þegar hann var 17 ára en hann hefur einnig leikið með Padova og Palermo á ferli sínum.
Darmian spilaði sinn fyrsta landsleik með Ítalíu í maí í fyrra en hann var í landsliðshópnum á HM í Brasilíu.
Þessi 25 ára gamli leikmaður getur spilað bæði sem hægri og vinstri bakvörður en hann er þó oftar hægra megin.
Athugasemdir