Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. júlí 2015 11:20
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo herramennskan uppmáluð í Vegas
Mynd: Instagram
Kona sem heitir Austin Milan bauð upp á fallega sögu á Instagram síðu sinni í gærkvöldi. Hún er stödd í fríi í Las Vegas rétt eins og Cristiano Ronaldo, stórstjarna Real Madrid.

Milan týndi farsímanum sínum en á einhvern ótrúlegan hátt var það Ronaldo sem fann símann.

Ronaldo sá til þess að síminn myndi skila sér aftur til Milan og auk þess ákvað hann að bjóða henni út að borða.

Ronaldo er laus og liðugur um þessar mundir eftir að hafa hætt með rússnesku ofurfyrirsætunni Irina Shayk í upphafi árs.

Hér að neðan má sjá mynd af Austin Milan og Ronaldo.
Athugasemdir
banner
banner
banner