Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 07. júlí 2015 10:45
Magnús Már Einarsson
Sky: Búið að samþykkja tilboð Man Utd í Darmian
Darmian í leik með Torino.
Darmian í leik með Torino.
Mynd: Getty Images
Sky greinir frá því að Torino hafi samþykkt tilboð frá Manchester United í bakvörðinn Matteo Darmian.

Kaupverðið hljóðar upp á 12,7 milljónir punda en ekki 14 milljónir punda eins og fréttir á Ítalíu sögðu í morgun.

Darmian spilaði sinn fyrsta landsleik með Ítalíu í maí í fyrra en hann var í landsliðshópnum á HM í Brasilíu.

Þessi 25 ára gamli leikmaður getur spilað bæði sem hægri og vinstri bakvörður en hann er þó oftar hægra megin.

Darmian spilaði sinn fyrsta leik í Serie A með AC Milan þegar hann var 17 ára en hann hefur einnig leikið með Padova og Palermo á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner