Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 07. júlí 2015 18:57
Arnar Daði Arnarsson
Sonur Eiðs Smára á bekknum hjá HK í kvöld
Sveinn Aron (t.v.)
Sveinn Aron (t.v.)
Mynd: Minifootballnews.gr
Sveinn Aron Guðjohnsen, sonur Eiðs Smára Guðjohnsen er í leikmannahóp HK í 1. deildinni í kvöld, þegar liðið tekur á móti Fjarðabyggð í Kórnum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 er í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.

Sveinn Aron er fæddur árið 1998 og er því á sautjánda aldursári. Hann er á yngsta ári í 2.flokki HK.

Við greindum frá því í síðasta mánuði að Sveinn Aron væri í viðræðum við hollenska félagið Groningen.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Sveinn Aron er í leikmannahóp HK í 1. deildinni. Hann hefur spilað fjóra leiki með 2. flokki HK í sumar og skorað í þeim leikjum eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner