Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 07. október 2015 18:19
Elvar Geir Magnússon
BBC segir að Liverpool kynni Klopp á morgun
Mynd: Getty Images
BBC hefur heimildir fyrir því að Liverpool muni kynna Þjóðverjann Jurgen Klopp sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins á morgun. Reiknað er með því að Klopp skrifi undir þriggja ára samning.

BBC er talinn einn áreiðanlegasti fjölmiðill heimsins.

Nafn Klopp kom upp í umræðuna hjá stuðningsmönnum Liverpool um leið og hitna fór undir Brendan Rodgers en Rodgers var svo rekinn eftir jafnteflisleik gegn Everton á sunnudag.

Liverpool verður þriðja félagið sem Klopp verður aðalþjálfari hjá á stjóraferlinum en hann var með Mainz 2001-2008 og náði svo eftirtektarverðum árangri hjá Borussia Dortmund þar sem hann starfaði 2008-2015.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner