Íslensku deildirnar í knattspyrnu eru allar búnar en þó fer fram einn stórleikur hér á landi í kvöld.
Kvennalið Stjörnunnar mætir WFC Zvezda 2005 frá Rússlandi í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og fer leikurinn fram á Samsung-vellinum í Garðabæ klukkan 19:00.
Lið þetta er það sama og sló Stjörnuna úr leik á sama stigi keppninnar í fyrra og hafa bikarmeistararnir því harma að hefna.

Leikur dagsins á Íslandi
19:00 Stjarnan - WFC Zvezda 2005
Athugasemdir