Helgina 23.-25. okt nk verður knattspyrnunámskeið hjá Coerver Coaching í Bárunni á Höfn í Hornafirði.
Námskeiðið er fyrir alla drengi og stúlkur í 3.-6. flokki.
Coerver Coaching er æfinga og kennsluáætlun í knattspyrnu sem hentar öllum aldurshópum, en sérstaklega aldrinum 8-16 ára á öllum getustigum.
Aðalmarkmið Coerver Coaching
Er að þjálfa færni, sjálfstraust og sköpunargleði hjá leikmönnum.
Gera leikinn skemmtilegan í æfingum og leik.
Kenna góðan íþróttaanda og virðingu fyrir allt og öllu.
Virða sigur en ekki meir en gott hugarfar og frammistöðu.
Bjóða upp á öruggt og lærdómsríkt umhverfi sem mætir best þjálfunarmarkmiðunum.
Yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Coerver Coaching á Íslandi er Heiðar Birnir Torleifsson s. 659-5700 og póstfang: [email protected]
Dagskrá - Æfingar
Iðkendur (2005-2007) Fös kl. 17.00-18.15 Lau og Sun kl. 08.30-11.30
Iðkendur (2000-2004) Fös kl. 18.45-20.00 Lau og Sun kl. 12.00-15.00
Verð kr. 12.500 + 10% systkina afsláttur
*Iðkendur fá Coerver Coaching treyju frá Adidas
Hér er myndbrot frá æfingum Coerver Coaching
Skráning er hafin hér http://coerver.is/shop/Knattspyrnuskoli og á póstfanginu [email protected].
Athugasemdir