Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 07. október 2015 22:20
Arnar Geir Halldórsson
Mandzukic ekki með Króötum í mikilvægum leikjum
Mario Mandzukic
Mario Mandzukic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatar verða án aðalframherja síns, Mario Mandzukic, í leikjunum gegn Búlgaríu og Möltu í H-riðli undankeppni EM.

Mandzukic var valinn í landsliðshópinn þrátt fyrir að hafa ekki verið með Juventus í undanförnum leikjum vegna meiðsla en Króatía er í hættu að komast ekki upp úr riðlinum.

Ekkert verður þó af því að Mandzukic leiki með landsliðinu í komandi verkefni þar sem hann hefur snúið aftur til Ítalíu þar sem hann mun reyna að ná sér góðum af meiðslunum.

Króatía er með fjórtán stig í þriðja sæti riðilsins, tveim stigum á eftir Noregi en Ítalía er á toppnum með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner