Stefán Stefánsson, læknir íslenska landsliðsins, þurfti að koma Ólafi Inga Skúlasyni til bjargar í morgunmat í morgun.
„Það var bökuð baun eða eitthvað sem hrökk vitlausu megin ofan í og það var smá panic," sagði Ólafur Ingi við Fótbolta.net í dag.
„Þetta var á tæpasta vaði. Stebbi sjúkraþjálfari bjargaði lífi mínu. Hann notaði klassiskan Heimlich til að ná þessu upp."
Ólafur Ingi segir að landsliðsmenn hafi gert mikið grín að honum eftir atvikið.
„Maður á undir högg að sækja. Það er svolítið af bröndurum sem fljúga á mann núna og maður verður bara að sætta sig við það," sagði Ólafur Ingi.
Athugasemdir