banner
   mið 07. október 2015 06:00
Fótbolti.net
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Um 600 ungmenni tóku þátt í hæfileikamótun KSÍ
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Um 600 ungmenni tóku þátt í Hæfileikamótun KSÍ og N1 sem lauk um liðna helgi með fótboltamóti drengja í Kórnum í Kópavogi, en stúlknamótið fór fram helgina 19.-20. september.

Þetta er annað sumarið sem Hæfileikamótun KSÍ og N1 er haldið. Að þessu sinni tóku 600 ungmenni þátt, víðsvegar af landinu.

Fótboltalið um allt land fengu heimsóknir frá þjálfurum KSÍ sem stóðu fyrir fræðslu og mátu jafnframt getu leikmanna á aldrinum 13 til 14 ára í þeirri von að finna framtíðarleikmenn landsliðsins.

Í kjölfarið bauðst 200 upprennandi íþróttamönnum, 95 drengjum og 82 stúlkum, að taka þátt í Hæfileikamótun í Kórnum og landsliðsþjálfurum gafst tækifæri til að fylgjast með þeim spila.

„Það er okkur í knattspyrnuhreyfingunni mikið ánægjuefni að fá jafn öflugan bakhjarl og N1 til liðs við okkur í þessu mikilvæga verkefni sem Hæfileikamótunin er. Verkefnið hefur heppnast afar vel, sem sést sérstaklega á því hvað fjöldi þátttakenda hefur vaxið milli ára." segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ.

Í ár fóru þjálfarar KSÍ víða en þeir heimsóttu m.a. leikmenn á höfuðborgarsvæðinu, Hvolsvelli, Vestmannaeyjum, Höfn, Reyðarfirði, Akureyri, Ísafirði og Borgarbyggð.
Athugasemdir
banner
banner
banner