Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. desember 2016 10:41
Magnús Már Einarsson
Carrick, Valencia og Darmian ekki með Man Utd á morgun
Antonio Valencia verður ekki með á morgun.
Antonio Valencia verður ekki með á morgun.
Mynd: Getty Images
Manchester United fer í dag til Úkraínu fyrir leikinn gegn Zorya Luhansk í Evrópudeildinni annað kvöld.

Manchester United nægir stig í leiknum til að komast áfram í 32-liða úrslitin.

Michael Carrick, Matteo Darmian og Antonio Valencia fóru ekki með liði United en þeir byrjuðu allir gegn Everton um helgina.

Memphis Depay og Morgan Schneiderlin eru heldur ekki hópnum frekar en Bastian Schweinsteiger sem er ólöglegur í Evrópudeildinni þar sem hann var ekki skráður í leikmannahóp United.

Chris Smalling og Luke Shaw eru einnig frá keppni vegna meiðsla.

Hópurinn: De Gea, Romero, Johnstone; Fosu-Mensah, Jones, Bailly, Rojo, Blind, Young; Fellaini, Herrera, Pogba, Lingard, Mata, Mkhitaryan; Martial, Rashford, Rooney, Ibrahimovic.
Athugasemdir
banner
banner
banner