Olivier Giroud, framherji Arsenal, mun ekki fara frá félaginu þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar en umboðsmaður hans hefur greint frá þessu.
Giroud hefur einugis byrjað tvíviegis á tímabilinu en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum auk þess sem Alexis Sanchez hefur farið á kostum í nýrri stöðu sem fremsti maður.
„Olivier líður mjög vel hjá Arsenal," sagði Michael Manuello, umboðsmaður Giroud.
„Hann klárar tímabilið hér. Það gerist ekkert í janúar. Hann hefur engar áætlanir um að fara þegar félagaskiptaglugginn opnar."
Athugasemdir