Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. desember 2016 10:00
Magnús Már Einarsson
Le Tissier fór nakinn í nudd hjá manni sem er ásakaður
Matt Le Tissier.
Matt Le Tissier.
Mynd: Getty Images
Bob Higgins, fyrrum yngri flokka þjálfari hjá Southampton, hefur verið mikið í umræðunni í tengslum við kynferðislega misnotkun á ungum fótboltaliðkendum á Englandi.

Mikil umræða hefur átt sér stað á Englandi undanfarnar vikur og Higgins er einn af þeim fyrrum yngri flokka þjálfurum sem sakaðir eru um að hafa brotið gegn ungum drengjum.

Matt Le Tissier, frægasti leikmaður í sögu Southampton, greindi frá því viðtali við BBC í gær að hann og fleiri leikmenn í unglingaliði Southampton hafi farið naktir í nudd til Higgins á sínum tíma. Le Tissier segist hins vegar ekki hafa verið kynferðislega misnotaður.

„Allir voru nánast naktir og hent í rúmið hans. Þetta var mjög fljótlegt nudd og þetta var mjög óþægilegt," sagði Le Tissier við BBC.

„Þetta var mjög rangt og þegar maður horfir til baka þá sér maður það. Sem ungur drengur hugsaði maður *er þetta eðlilegt?"

Le Tissier bætti við á Twitter í gærkvöldi: „Ég vil taka fram að mér leið aldrei eins og ég hefði verið misnotaður. Líður heldur ekki þannig núna. Ekki vorkenna mér. Ég er í góðu lagi. Ég sagði bara frá því sem gerðist."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner