Allan Nyom, leikmaður West Brom á Englandi, hefur beðist afsökunar á því að hafa fagnað ótæpilega í sigri gegn Watford á dögunum.
Nyom fór frá Watford í sumar og samdi í kjölfarið við WBA. Liðin mættust síðan í ensku úrvalsdeildinni um helgina og lauk leiknum með 3-1 sigri WBA.
Nyom þótti fagna innilega þegar Matt Phillips innsiglaði sigur WBA undir lok leiksins við litla hrifningu stuðningsmanna Watford.
Nyom hefur nú birt afsökunarbeiðni á Instagram síðu sinni.
Athugasemdir