mið 07. desember 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Lukaku: Aldrei séð Pogba svona glaðan
Paul Pogba
Paul Pogba
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, framherji Everton og Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, eru miklir vinir en sá fyrrnefndi segist sjaldan hafa séð Pogba eins ánægðan og þegar hann skrifaði undir hjá Manchester félaginu.

Pogba var með félagsskiptunum dýrasti knattspyrnumaður heims en hann lék sín fyrstu ár hjá Manchester United. Hann fór hins vegar ungur að árum frá félaginu og til Juventus áður en hann kom aftur til United í sumar.

Pogba hefur ekki alveg náð að sýna sitt allra besta andlit á Old Trafford en Lukaku segir það hafa verið algjöran draum fyrir Frakkann að koma aftur til Manchester United en hann var viðstaddur þegar Pogba skrifaði undir.

„Það voru tíu manns með skjalatöskur í kringum hann og það voru samningar í þeim öllum. Þegar það var búið að ganga frá öllu var hann himinlifandi. Ég er búinn að þekkja hann í mörg ár og ég hef aldrei séð hann svona glaðan. Það hefur ekkert að gera með peninga að hann kom til baka," sagði Lukaku.

„Við vorum saman í LA í sumarfríi þegar hann sagði mér að draumurinn væri að fara aftur til Manchester United," bætti Belginn við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner