Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 07. desember 2016 11:10
Magnús Már Einarsson
Myndir: Liverpool horfði á Barcelona í gærkvöldi
Lið Liverpool í stúkunni í gærkvöldi.
Lið Liverpool í stúkunni í gærkvöldi.
Mynd: Getty Images
Eftir 4-3 tapið gegn Bournemouth um helgina fór lið Liverpool til Barcelona í æfingaferð.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, mætti ásamt leikmönnum sínum á völlinn í gær þegar Barcelona sigraði Gladbach 4-0 í Meistaradeildinni.

Leikmenn Liverpool vöktu talsverða athygli á vellinum enda ekki oft sem heilt úrvalsdeildarlið mætir í stúkuna að fylgjast með leik í Meistaradeildinni.

Liverpool æfir í Barcelona í vikunni áður en liðið mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þar vonast liðið til að halda áfram í toppbaráttunni í von um að geta verið inni á vellinum en ekki í stúkunni í Meistaradeildinni næsta vetur.

Hér að neðan má sjá myndir af liði Liverpool á Nou Camp í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner