Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 22. desember 2016 18:01
Hafliði Breiðfjörð
Uppboð á málverki Tolla á Fótbolta.net
Málverkið hans Tolla sem er boðið upp á Fótbolta.net.
Málverkið hans Tolla sem er boðið upp á Fótbolta.net.
Mynd: Tolli
Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli taka höndum saman í desember og bjóða upp málverk eftir Tolla hér á vefnum.

Öll upphæðin mun renna til góðgerðarmála en ákveðið var að styðja Fjölskylduhjálp Íslands nú fyrir jólin.

Myndin er af eyðibýli en hana má sjá hér með fréttinni. Hún er í stærðinni 120x120 cm.

Uppboðið er hafið hér á vefnum. Sendið upplýsingar um upphæð og nafn bjóðanda á netfangið [email protected].

Við uppfærum svo fréttina jafnóðum með hæsta boð en nöfn bjóðenda birtast ekki á vefnum. Lokadagur tilboða er 22. desember klukkan 18:00.

Hæsta boð:
620.000,-

Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða í jólamánuðinum.
Athugasemdir
banner