Yfirvöld í Bolivíu hafa handtekið Gustavo Vargas, yfirmann flugfélagsins LaMia. Það er flugfélagið sem átti flugvélina sem fórst í Kolumbíu í síðustu viku.
71 lést í slysinu í síðustu viku en þar á meðal voru 19 leikmenn brasilíska félagsins Chapecoense.
Vargas hefur nú verið handtekinn á meðan rannsókn á flugslysinu stendur yfir. Talið er að flugvélin hafi orðið bensínlaus og því hafi hún hrapað skömmu fyrir lendingu í Kolumbíu.

Yfirvöld í Bolivíu segjast að flugmaðurinn í fluginu hafi verið varaður við því að flugvélin væri ekki með nægilega mikið bensín til að ná á áfangastað en frekari rannsókn stendur nú yfir.
Athugasemdir