Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 08. janúar 2017 12:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Gerði Southampton risa tilboð í Gylfa?
Gylfi Þór að berjast við Jack Wilshere
Gylfi Þór að berjast við Jack Wilshere
Mynd: Getty Images
Guðmundur Benediktsson eða Gummi Ben tístir því í dag að Southampton hafi gert 34 milljóna punda tilboð í Gylfa Þór Sigurðsson, leikmann Swansea.

Gylfi er eftirsóttur eftir mjög góða spilamennsku undanfarið og hafa félög eins og Liverpool, Tottenham og Everton verið nefnd sem hugsanlegur næsti áfangastaður Gylfa.

Hann hefur þó sagt sjálfur að hann ætli ekki að fara frá Swansea í janúar þar sem hann vill ólmur hjálpa liðinu halda sæti sínu í deildinni.

Forvitnilegt verður að sjá á næstu dögum, hvort eitthvað verði að frétta í málum Gylfa.



Athugasemdir
banner
banner