Arsenal hefur krækt í Ben Wrigglesworth frá toppliði Leicester. Ben er ekki leikmaður en hann á hins vegar stóran þátt í velgengni Leicester.
Ben var yfirnjósnari Leicester en hann er nú farinn til Arsenal þar sem hann mun starfa sem njósnari.
„Það var erfið ákvörðun að fara frá Leicester en ég tók tækifæri sem býðst ekki oft," sagði Ben.
Ben var yfirnjósnari Leicester en hann er nú farinn til Arsenal þar sem hann mun starfa sem njósnari.
„Það var erfið ákvörðun að fara frá Leicester en ég tók tækifæri sem býðst ekki oft," sagði Ben.
Ben hefur starfað hjá Leicester frá árinu 2012 og hjálpað liðinu að finna öfluga leikmenn fyrir lágar fjárhæðir.
Leicester hefur meðal annars keypt Riyad Mahrez á 400 þúsund pund, Jamie Vardy á eina milljón punda og N'Golo Kante á 5,6 milljónir punda undanfarin ár.
Athugasemdir