Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. febrúar 2016 14:37
Elvar Geir Magnússon
Miðasala hafin á Danmörk - Ísland
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
A-landslið karla leikur tvo vináttulandsleiki í mars, fyrst gegn Dönum í Herning 24. mars og síðan gegn Grikkjum í Aþenu 29. mars. Opnað hefur verið fyrir miðasölu á leikinn við Dani.

Miðasalan fer fram í gegnum miðasöluvef danska knattspyrnusambandsins, www.billetsalg.dbu.dk.

Stuðningsmenn Íslands sem hyggjast mæta á leikinn eru hvattir til að kaupa miða í svæði sem merkt er “Udehold” og er á milli “Nord Tribune” og "Øst Tribune”. Á miðasöluvefnum undir hlekknum hér að framan er hægt að skoða upplýsingar um verð og fleira.

Leikurinn fer fram á MCH-leikvanginum í Herning, sem er heimavöllur FC Midtjylland. Leikvangurinn tekur alls 11.500 áhorfendur og þar af 7.300 í sæti.
Athugasemdir
banner
banner