Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 08. febrúar 2016 10:30
Magnús Már Einarsson
Neville stýrir Valencia á miðvikudag
Mynd: Getty Images
Gary Neville verður á sínum stað á hliðarlínunni þegar Valencia mætir Barcelona í spænska bikarnum á miðvikudag en Sky Sports greinir frá þessu í dag.

Neville er undir gífurlegri pressu eftir skelfilegt gengi Valencia síðan hann tók við liðinu í byrjun desember.

Valencia tapaði 1-0 gegn Real Betis í gær og hefur ekki ennþá unnið deildarleik undir stjórn Neville.

Valencia steinlá 7-0 gegn Barcelona í spænska bikarnum í síðustu viku en um var að ræða fyrri leik liðanna.

Neville mun stýra Valencia í síðari leiknum á miðvikudag en hann missir ekki starfið fyrir þann leik samkvæmt frétt Sky.
Athugasemdir
banner
banner